Samkvæmt 2. mgr. 27. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki er byggingarstjóra ætlað að vera faglegur fulltrúi eiganda við mannvirkjagerð og starfa í umboði hans samkvæmt skriflegum ráðningar- eða verksamningi við eiganda. Segir þar jafnframt að byggingarstjóri skuli gæta réttmætra hagsmuna eiganda gagnvart byggingaryfirvöldum, hönnuðum, iðnmeisturum og öðrum sem að mannvirkjagerðinni koma.
Í samræmi við framangreint hlutverk byggingarstjóra er kveðið á um það í 3. mgr. 27. gr. laga nr. 160/2010 að byggingarstjóra sé óheimilt að taka að sér ábyrgð á einstökum verkþáttum mannvirkjagerðar sem hann stýri. Byggingarstjóra beri að framkvæma innra eftirlit með verkinu og að þeir aðilar sem koma að byggingu mannvirkisins fari að settum reglum. Byggingarstjóri á ekki að vera samhliða hönnuður eða iðnmeistari verksins.
Eina undantekningin frá þessu er ef um er að ræða minniháttar mannvirkjagerð til eigin nota eiganda, sbr. 3. mgr. 27. gr. laganna, en þá getur eigandi óskað eftir að einn af iðnmeisturum eða hönnuðum verksins taki að sér byggingarstjórn þess. Undanþágan er heimiluð til að koma í veg fyrir að byggingarkostnaður smáframkvæmda aukist þegar umfang slíkra verka sé ekki þess eðlis að nauðsynlegt sé að sérstakur aðili annist innra eftirlit.
Í dómi Landsréttar í máli nr. 449/2025, var m.a. fjallað um ákvæði 3. mgr. 27.gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki og tekið af allan vafa um, að byggingarstjóra er óheimilt að taka einnig sér að vera iðnmeistari eða hönnuður á verkframkvæmdum, nema þegar um smáframkvæmdir er að ræða.
Það segir orðrétt í forsendum dómsins: „Þótt ákvæði 3. mgr.27. gr. hljóði samkvæmt orðalagi sínu á þann veg að byggingarstjóra sé óheimiltað taka að sér ábyrgð á ,,einstökum verkþáttum“ er með hliðsjón af markmiðiákvæðisins ekki unnt að túlka það með þeim hætti að byggingastjóra sé allt aðeinu heimilt að taka að sér yfirumsjón með viðamiklum endurbótum á fasteign semverktaki. Ef svo væri, væri útséð um að ákvæðið næði tilgangi sínum, að markaskýr skil milli ábyrgðar byggingarstjóra og annarra sem koma að byggingumannvirkis.“




