Í dómi Landsréttar í máli nr. 728/2025 var meðal annars deilt um dagsektarákvæði í kaupsamningi um margar fasteignir.
Kaupandi krafðist greiðslu dagsekta samkvæmt kaupsamningnum eftir að umsaminn afhendingardagur var liðinn.
Eftir að afhendingarfresturinn rann út sömdu aðilar um að kaupandi gæfi eftir hluta dagsektanna gegn því að seljandi lyki framkvæmdum við eignina og afhenti hana á nýjum umsömdum degi.
Með samkomulaginu viðurkenndi seljandi gildi dagsektarákvæðis kaupsamningsins og gat því ekki síðar borið fyrir sig að ákvæðið gilti ekki.
Seljandi afhenti eignina heldur ekki á nýjum umsömdum degi en hélt því fram að samkomulagið um eftirgjöf að hluta gilti áfram. Dómurinn hafnaði þeirri málsástæðu og lagði til grundvallar að loforðið um eftirgjöf hefði fallið niður þegar seljandi stóð ekki við nýjan afhendingarfrest.
Seljandi hélt því einnig fram að dagsektirnar yrðu ekki gjaldkræfar fyrr en við lokauppgjör. Lokauppgjörið hafði þá enn ekki farið fram vegna afhendingardráttarins. Dómurinn hafnaði þessari málsástæðu og staðfesti að krafa um dagsektir stofnast fyrir hvern dag sem afhendingardrátturinn varir.
Seljandi vísaði loks til greinar 5.2.8 í ÍST 30, til skuldajöfnunar en samkvæmt henni getur verkkaupi dregið gjaldfallnar tafabætur frá síðari greiðslum til verktaka. Dómurinn benti á að staðallinn hefði ekki lagagildi og yrði aðeins hluti samnings ef um það væri sérstaklega samið. Málið varðaði kaupsamning um fasteign en ekki verksamning og við slík kaup verður ekki byggt á ákvæðum staðalsins nema vísað sé til hans í kaupsamningnum.
Ef þú ert í vafa um dagsektir skaltu hafa samband.




